Feed on
Posts
Comments

boys on wheels

Í vor þegar ég var í Noregi að heimsækja Dagrúni sys þá sá ég brot af skemmtiþætti föstudagskveldsins. Enda atriðið voru 3 gaurar í hjólastól að syngja coverlög með eigin textum. Ég hló að sumum textunum og dáðist að hugrekkinu að gera grín af eigin takmörkunum. Núna rakst ég á þetta myndband á youtube í gegnum mann sem þekkir mann….

Boys on wheels

Aðal gaurinn er grínisti að atvinnu skilst mér, svona ef það skiptir einhverju máli.

dagur 5




dagur 5

Originally uploaded by _Skotta_

Nú var ég þvílíkt búin að upphuxa eitthvað skemmtilegt til að blogga um, en nei, ég er búin að gleyma því. Ímyndið ykkur bara að ég hafi haft eitthvað merkilegt að segja. Engin athygliverð pæling, ekkert væl, ekkert….

En ég er afskaplega dugleg í myndunum mínum núna. Þar er að segja ef að vera duglegur er að á annað borð gera eitthvað.

Bakaði smákökur í gær. Var byrjuð að hræradegið og þá uppgötvaðist að það var egglaust á heimilinu. Bankaði á næsta bæ og fékk egg, það þýddi með kaffispjalli og öllu að ég var að taka síðustu kökurnar úr ofninum um miðnætti. Svona fer dugnaðurinn með mann.

æji, já. Ritgerð frestað og mig vantar vinnu í nóvember og desember……Það eru kannski fréttir.

Sjóræningja dagur

Hvað er málið með netheimana í dag “talk like A priate” Það eru sjóræningjafánar allstaðar og ég er greinilega ekki “down with it” af því ég vissi bara ekki alveg hvað er í gangi.

Málið er semsagt að einkahúmor tveggja vina er að breyðast út og verða að alþjóðlegum degi - talk like a pirate day - og svo flissar fólk þegar ég tala um að gera eitthvað eins og vindurinn. Það er greinlega hægt að troða húmor vinahóps upp á heilu samfélögin. Þrátt fyrir að maður hafi engin pólítísk völd eða sé ekki ríkur og frægur.

Wikipedia

og official heimasíða 

Þetta er á mörkunum að vera ekki fyndið!

msn live windows messenger

Allt í lagi, ég er langt frá því að vera tæknivædd. Langt! Þannig að ég verð stundum sár og pirruð á því þegar hlutirnir í tölvunni minni virka ekki. Ok, alltaf. Núna á ég í stríði við nýja msn-ið. Einhverja hluta vegna var ég neydd (af microsoft) til að skipta um msn, nýji msn virkaði fínt til að birja með. Alveg þanngað til ég kveikti aftur á tölvunni daginn eftir.

Núna þarf ég að installa þessu drasli í hvert skipti sem ég kveiki á tölvunni, þar er að segja ef ég hef huxað mér að nota msn. Kann ekki á þetta og fórna bara höndum, en ef þið hafið einhverja hugmynd um hvað er að….HJÁLP!

Ég held ég fari bara inn á facebook og kasti tómötum í fólk, eða kindum.

fréttir eða slúður!

Undanfarin ár hef ég verið það heppin að hafa í kringum mig fréttamenn, blaðamenn eða aðra einstaklinga sem vinna við fjölmiðla. Er nú aðalega bara heppin af því þetta tiltekna fólk er svo skemmtilegt, en þessu hefur líka fylgt að ég veit stundum hvað er að gerast áður en “allir hinir” komst að því. Stundum nota ég þetta gáfufólk mitt til að skilja slúðrið frá fréttunum. Maður heyrir nefnilega svo margt sem ekki endilega er síðan satt.

Í morgun frétti ég nefnilega dálítið sem ég veit ekki hvort er frétt eða slúður, og hvað geri ég? Auðvitað hef ég samband við fréttamanninn til að komast að því hvort þetta er satt eða ekki. Gallinn var að í þessu tilfelli þá kom hann af fjöllum og ég er engu nær um hvort þetta sé slúður eða frétt. Skulum orða það þannig að ef þetta er frétt þá er fréttamaðurinn með skúbb vikunnar, jafnvel mánaðarinns. En ef þetta er slúður, þá er fullt af fólki að drepast úr hlátri yfir spurningum núna.

Aftur á móti kemst ég ekki að því hvort þetta sé slúður eða frétt fyrr en seint og um síðar meir.

Jamm. ég er svoldið forvitin núna.

meðan ég man

ég hef eitthvað verið að tónlistarblogga líka!

Draumfarir…

Dreymdi svona líka skríngilega í nótt og nú þarf ég á hjálp við draumráðningu að halda. Ekki möguleiki á að svona atburðarrás í draumi þýði ekki eitthvað.

Sko, ég er þátttakandi í athöfn, unglingaathöfn sennilega fermingu, í kirkju. Þar sit ég með ýmsu fólki af báðum kynjum sem hafa mismunandi þýðingu fyrir mér. Þegar á líður athöfnina er mitt hlutverk að standa uppi við altarið og tala yfir hausamótunum á unglingunum. Ræðan snýst um eiturlyf og hvernig að ég sé á þeirri skoðun að besta forvörnin sé að láta eiturlyfjasjúklinga mæta í skólana og segja sögur, það hafi að minnsta kosti virkað á mig.

Allt í lagi, en áður en ég stend upp að halda ræðunu þá er ég búin að komast að þeirri niðurstöðu að mér sé svo afskaplega heitt. Þannig að ég fer fram í kór (nota bene sem er í þessari kirkju á neðri hæð), klæði mig úr öllum fötunum, legg þau á stólbak og  fer fram. Já, úr öllum fötunum og það er vitað mál að ég er frekar spéhrædd.

Eftir ræðuna sest ég aftur við hliðina á mínu fólki. Allir aðrir eru venjulega klæddir, nema sessunautur minn sem er í jakka yfir fötunum. Áður en athöfnini líkur þá er ég búin að ákveða að nú sé að verða kalt þannig að ég fer fram og klæði mig í nærbuxurnar og röndóttan bol. Þannig fer ég úr kirkjunni að athöfn lokinni og vakna þegar ég er að ganga með jakkaklædda sesunaut mínum (karlkyns) áleiðis út í kirkjugarðinn.

Samkvæmt draumur.is þá er ég í vondum málum, að fara vera veik og ég veit ekki hvað. En ég er nýbúin að vera veik og það er bara ósanngjarnt að ég sé að verða það aftur. Eða þá að allt sé að fara til fjandans.

Úlfhildur Stefanía

Ég er nú svo mikil “túramanneskja” að þegar ég er búin að læra eitthvað nýtt þá er það afskaplega spennandi og núna er það flickrið sem er besti vinur minn.


Úlfhildur Stefanía

Originally uploaded by _Skotta_

Tók einhverjar myndir af Wolfie um daginn, það eru mismunandi útgáfur og pælingar á flickrinu mínu.

Svona ef einhver nennir að skoða þær og kommenta á þær

Annars hefði einhver gæsaveiðimaðurinn glaðst yfir sjóninni sem ég hef út um gluggann. Stórar herdeildir af djöflafuglinum, svo feitar að þær varla hafa sig til flugs.

Kæra dagbók


Ljótu Hálfvitarnir

Originally uploaded by _Skotta_

Núna “fæ” ég að hitta lækni í fyrramálið, þriðji læknirinn í jafnmörgum skiptum. Er farin að velta fyrir mér hvort að eyrun á mér séu svona svakalega ógeðsleg að menn bara forði sér í frí eftir að rannsaka þau. En nei, það virðist ekki vera á hreinu hvað er að eyrunum á mér. Dómurinn sýking í eyrum gengur ekki alveg upp þegar hitt eyrað er líka farið að haga sér ílla. Þannig að ég á bara bátt, og takk kærlega fyrir vorkunina sem mér hlotnast.

Annars gekk Fljótsdalsdagurinn vel, ég var sultukonan, hlaupatíkin og myndavélalánari. Sem kom sér vel þar sem ég heyrði ekki nema helminginn af því sem ég kannski hefði þurft að heyra. Ljótu Hálfvitarnir voru brill, veðrið var kaflaskipt og ég missti af ótrúlegasta fólki sem ég hefði svo gjarnan viljað spjalla við. Gengur betur næst.

Þrátt fyrir myndavélalán þá tók ég einhverjar myndir þær eru á nýstofnaðri flickr síðu minni -

Annað hef ég hvorki dug né hugmyndarflug til að segja núna…

edit: bætti við einstaka F sem vantaði inn í ónefnd orð 

ó mig auma

Er búin að vera alltof önnum kafin við að vorkenna sjálfri mér til þess að einu sinni reyna að blogga. Ferð no. 2 til læknis á eftir (á innan við viku) en núna vona ég svo innilega að allt sé að lagast.

Skal væla í ykkur um ótrúlegan hæfileika minn til furðulegra veikinda þegar ég kem aftur með loka útskurð.

Vorkennið mér endilega þangað til!

Older Posts »